16 Apríl 2018 10:55

Bílvelta varð á Garðvegi á Suðurnesjum síðdegis í gær. Ökumaður slapp án meiðsla. Viðkomandi kvaðst hafa verið að fikta í útvarpinu og misst við það stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði utan vegar og valt.

Þá hafði annar ökumaður ekið bifreið sinni á vegrið milli akreina á Reykjanesbraut en var horfinn af vettvangi þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á staðinn. Þeir höfðu upp á honum og kvaðst hann finna til verkja eftir óhappið. Vegriðið skemmdist talsvert og bifreiðin var fjarlægð með dráttarbifreið.

Fleiri umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum en engin þeirra stórvægileg.