20 Desember 2016 11:47

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld ökumann eftir að hann hafði viðurkennt fíkniefnaneyslu örfáum mínútum áður en að hann hóf aksturinn. Áður hafði annar ökumaður verið handtekinn, grunaður um neyslu áfengis og fíkniefna. Hann viðurkenndi einnig vörslu amfetamíns og kannabis og var ofan í kaupið án ökuréttinda.

Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir glæfraakstur en þeir höfðu gert sér að leik að spóla og aka mjög ógætilega við gatnamót í Keflavík. Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru ótryggðar í umferðinni.