23 Mars 2015 15:51

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu.  Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og fá útköll á öldurhúsin.

Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni en við leit á karlmanni á fertugsaldri fundust smáræði af kannabisefnum.  Viðurkenndi maðurinn að vera eigandi efnisins og hafa ætlað þau til eigin nota.  Málið telst að mestu upplýst.

Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.  Þá liggja fyrir fjórar aðrar kærur vegna brota á umferðarlögum og má þar nefna akstur án þess að hafa öryggisbelti spennt,  notkun farsíma án handfrjálsbúnaðar við akstur og ólöglega lagningu ökutækja.