3 Október 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir gráum Range Rover Sport og tveimur 250cc bifhjólum, Yamaha og Husqvarna, en ökutækjunum var stolið frá Smiðjuvegi 9a í Kópavogi í gærkvöld eða nótt. Range Roverinn var án skráningarnúmera, en kann nú að vera með skráningarnúmerið ND-345 en því var einnig stolið á sama stað. Bifreiðin var jafnframt á öðrum felgum, en þeim sem sjást á myndinni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar ökutækin eru niðurkominn, eða geta veitt upplýsingar um málið að öðru leyti, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu, en upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið adalsteinna@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ef einhver sér til ökutækjanna í umferðinni er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að hringja tafarlaust í 112 svo hægt sé að bregðast við strax.

Þessum ökutækjum var stolið í Kópavogi.