24 Janúar 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda hlutanna á meðfylgjandi mynd en þeir fundust á víðavangi. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Krókhálsi í  síma 444-1190 en nánari upplýsingar veitir Árni Pálsson rannsóknarlögreglumaður virka daga frá kl. 8-15. Tekið skal fram að afhending muna fer fram gegn framvísun staðfestingar á eignarhaldi.