6 Desember 2007 12:00

Um þessar mundir eru 5 Pólverjar í farbanni að kröfu lögreglustjórans á Selfossi. Einn þeirra Przemyslav Pawel Krymski, sem kært hafði farbann til Hæstaréttar, sem staðfesti það, hefur nú yfirgefið Ísland. Lýst hefur verið eftir honum. Lögreglan á Selfossi hefur vegabréf hans og hinna fjögurra í vörzlum sínum. Rannsókn mála þessara manna er ekki lokið þar sem enn er beðið niðstöðu úr rannsóknum lífsýna. Farbann þess sem yfirgaf Ísland átti að renna út hinn 17. desember n.k.