8 Maí 2013 12:00

Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer nú með rannsókn, í samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum og tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, á voveiflegu andláti 59 ára gamals karlmanns sem fannst látinn í íbúð sinni á Egilsstöðum í gærmorgun. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum rannsókn málsins, og var seint í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21 maí n.k.

Rannsókninni miðar vel og rætt hefur verið við fjölda manna vegna hennar. Ekki er unt að svo stöddu að gefa upp nafn hins látna.