22 Desember 2021 11:36

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Seilugranda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 398 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Eiðsgranda er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.