13 Apríl 2015 15:16

Í liðinni viku voru 6 ökumenn kærðir fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða.  Þessi hraðakstursbrot áttu sér stað í Ísafjarðardjúpi, á Skutulsfjarðarbraut, á Hnífsdalsvegi og víðar.

Þá tók lögreglan skráningarmerki af alls 7 bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til reglubundinnar skoðunar eða án lögbundinnar ábyrgðartryggingar.

Lögregla og björgunarsveitir áttu í töluverðum önnum vegna ófærðar á heiðum í umdæminu, s.s. í Strandasýslu í Vesturbyggð og einnig í Ísafjarðardjúpi.

Ein kæra var lögð fram vegna meintrar líkamsárásar.  Það mál er til rannsóknar hjá lögreglunni.

Að kveldi laugardagsins 11. apríl sl. hafði lögreglan afskipti af ökumanni sem ók afar ógætilega í miðbænum á Ísafirði, lét bifreiðina renna af ásettu ráði milli akgreina og allt of hratt miðað við aðstæður.  Ökumanninum var gerð sekt fyrir brotin.

Þá var einn ökumaður stöðvaður á Ísafirði, grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna.  Sá neitaði að veita atbeina við rannsókn málsins, þ.e.a.s. að láta í té þvagsýni.  Slík neitun, ein og sér, hefur í för með sér eins árs ökuleyfissviptingu.