2 Október 2015 14:35

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gær tilkynning frá öryggisgæslunni á Keflavíkurflugvelli að köttur hefði sloppið úr búri við flugvél Icelandair á vellinum. Ekki varð úr frekari ferðalögum kisa á eigin vegum því þegar lögreglumaður mætti á staðinn höfðu starfsmenn hlaðdeildar flugfélagsins haft snarar hendur og gómað hann. Kötturinn var því kominn aftur í búrið sem hafði verið lokað vel og vandlega svo hann endurtæki ekki leikinn.