18 Nóvember 2016 10:19

Mildi þykir að ekki fór verr en raun varð á þegar bifreið á slitnum sumardekkjum valt á Reykjanesbraut austan við Kaffitár í Keflavík í vikunni. Bíllinn hafði byrjað að rása og missti ökumaðurinn við það stjórn á honum. Því næst hafnaði bíllinn á ljósastaur, valt niður sneiðing og hafnaði neðst í honum. Ökumaðurinn og tveir farþegar voru komnir út úr bílnum þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Fólkið var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum en farþegarnir ekki. Bifreiðin var mjög illa farin eftir óhappið.

Þá valt bifreið í Hvassahrauni. Ökumaðurinn kenndi eymsla eftir óhappið. Annarri bifreið var ekið á grindverk. Hún var óökufær en ekki urðu slys á fólki.

Fleiri umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni en þau voru minni háttar og ekki urðu slys á fólki.