29 Apríl 2004 12:00

Lögreglan í Keflavík auglýsir eftir vitnum að utanvegaakstri torfærumótorhjóla við Djúpavatn í Reykjanesfólkvangi.  Myndirnar voru teknar þann 28. apríl sl. og sýna náttúruspjöll við nyrðri enda Djúpavatns.  Þeir sem vita hver eða hverjir voru hér á ferð eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Keflavík í síma 420-2400.