6 Mars 2006 12:00

Almannavarnanefnd Rangárvallasýslu í samvinnu við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stóðu fyrir opnum íbúafundi í Félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli í kvöld.  Fundurinn var vel sóttur en hann í röð annarra funda þessara aðila þar sem fjallað er um viðbrögð íbúa og hins opinbera vegna eldgoss í Mýrdalsjökli, í framhaldinu jökulhlaups niður Markarfljót um Emstrur, fram Fljótshlíð og um Markarfljótsaura til sjávar.  Fundir sem þessir hafa þegar verið haldnir í V-Skaftafellssýslu, undir Eyjafjöllum og niður í Þykkvabæ.  Fleiri fundir hafa þegar verið auglýstir núna í mars; í Landeyjum, Fljótshlíð og Hvoli.

Kjartan Þorkelsson sýslumaður, formaður almannavarnanefndar Rangárvallasýslu, gerði grein fyrir skipulagi almannavarna, störfum almannavarnarnefndar, aðgerðarstjórnar og vettvangstjórnar þegar nátturuvá stendur fyrir dyrum og á hættutímum.  Þá fór hann yfir þá vinnu sem búið er að leggja í rýmingaráætlun vegna þeirra landsvæða sem hætta er búin vegna jöklulhlaups í tengslum við eldgos í Mýrdalsjökli.  Sýnd var á mjög áhrifaríkan hátt hreyfimynd á kortagrunni, líkan af hugsanlegu jökulflóði þar sem sýnt var rennsli flóðsins, vatnsmagn, hæð þess og tímakvarði í klukkustundum og mínútum. Kynnt var fyrirhuguð æfing sem fram fer sunnudaginn 26. mars n.k. þar sem látið verður reyna á alla þætti almannavarnaskipulagsins og þar með talda rýmingu á því svæði sem þegar hefur verið skilgreint rýmingarsvæði.

Gyða Árný Helgadóttir verkefnafulltrúi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra fór yfir undirbúning, viðbrögð íbúa við jökulhlaupi úr Mýrdalsjökli, hættur sem eldgosi og jökulhlaupi fylgir en í máli hennar kom m.a. fram að tíminn sem íbúar hafa til að yfirgefa heimili sín er afar knappur eða um 30 mínútur.  Íbúum var gerð grein fyrir með hvaða hætti rýmingin verður framkvæmd, til hvers er ætlast og hvert þeir eiga að fara til skráningar í Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins sem ákveðnar hafa verið á Hellu og í  Skógum en auk þess verður skráningarstöð á Hvolsvelli.  Gyða Árný fór yfir ýmiss hagnýt atriði fyrir íbúana til að hafa í huga þegar til hamfara sem þessar koma.  Hér reynir á samvinnu allra aðila og skipulagningu.

Fleiri fundir með íbúum svæðisins og þeim sem eiga t.d. sumarhús á hættusvæðinu hafa þegar verið auglýstir en næstu fundir verða í Gunnarshólma 8. mars kl.14:00-16:00, Njálsbúð sama dag kl.20:30 – 22:30, Goðalandi 9. mars kl.14:00-16:00 og síðar sama dag í Hvoli kl.20:00 – 22:00 og loks verður aukafundur í Hvoli laugardaginn 18. mars n.k. kl.10:00 – 12:00.  Allir eru hvattir til að mæta á fundina sem eru í senn upplýsandi og fræðandi.

Meðfylgjandi ljósmyndir voru teknar á fundunum sem haldinn var í Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli í kvöld og tala þær sínu máli.