7 Júní 2008 12:00

Lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu um 200 ökumenn á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut í morgun á milli kl. 07:30 og 11:00.  Þetta var gert til að kanna ástand ökumanna og ökutækja.  Allir bílstjórarnir voru fengnir til að blása í áfengismæli.  Einn stóðst ekki prófið.  Hann var tekinn úr umferð og blóðsýni tekið frá honum sem sent verður í rannsókn.  Tvær bifreiðar voru á negldum hjólbörðum og ökumenn þeirra kærðir vegna þess.  Auk þessa eftirlits var lögreglubifreið á Suðurlandsvegi í hraðamælingum. Fjórir ökumenn mældust  yfir hámarkshraða.