9 September 2008 12:00

Lögreglan á Selfossi handtók í gær, mánudag, Litháa vegna gruns um þjófnað.  Húsleit var gerð á dvalarstað mannsins og þar fannst þýfi þar á meðal fjórar innkaupakörfur merktar Bónus.  Í yfirheyrslum í dag viðurkenndi maðurinn að hafa borið varning út úr verslunum Bykó og Bónus á Selfossi án þess að greiða fyrir þær.  Þá viðurkenndi maðurinn tilraun til að stela olíukálfi með hráolíu sem staðsettur var í sumarbústaðabyggð í Grímsnesi.  Eigandi olíukálfsins stöðvaði manninn þar sem hann var á leið með olíukálfinn eftir þjóðveginum. Verðmæti þýfisins er rúmlega hálf milljón króna.  Lögreglustjóri gaf út ákæru þegar eftir að yfheyrslu var lokið og mun málið væntanlega verða tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í dag.