5 Júlí 2011 12:00

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfu lögreglustjórans á Selfossi um gæsluvarðhald á manni sem handtekinn var í fyrrakvöld eftir að hafa hleypt skotum af byssu á Stokkseyri.  Jafnframt var hafnað kröfu um að maðurinn sætti geðrannsókn.  Málið er í rannsókn og ferð að henni lokinni til meðferðar hjá saksóknara.