26 Október 2013 12:00

Lögregla, slökkvi- og sjúkralið ásamt læknum og hjúkrunarfólki var kallað að íbúðarhúsi í Hveragerði kl. 16:42 í dag þar sem sprenging hafði orðið í húsinu.   Sjö einstaklingar voru í húsinu, hjón með börn sín og barnabörn, og brenndust þau öll eitthvað.  Maður á sextugsaldri og drengur fæddur 2007 eru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík með 2 stigs bruna en hin verða flutt á sjúkrahúsið á Selfossi til aðhlynningar.   Þá brenndist heimilishundurinn einnig eitthvað og verður leitað til dýralæknis með hann.

Sprengingin er rakin til etanol arins sem nýlega var settur upp í húsinu.  Nokkurt tjón er á innanstokksmunum en húsnæðið sjálft er lítið skemmt.  Björgunarlið er enn á vettvangi ásamt rannsóknarlögreglu.