8 September 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Gullinbrúar og Fjallkonuvegar í Reykjavík mánudagskvöldið 1. september, en tilkynning um áreksturinn barst kl. 21.38. Þar rákust saman dökkgrár Toyota Land Cruiser og grár Audi, en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Toyotunni var ekið norður Gullinbrú og Audi-bifreiðinni vestur Fjallkonuveg, en ökumaður síðarnefnda bílsins hugðist beygja til vinstri á gatnamótunum og aka síðan suður Gullinbrú þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið asgeir.gudmundsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.