6 Febrúar 2023 10:23

Að venju var sitthvað að fást við á helgarvaktinni á höfuðborgarsvæðinu, en tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu. Tilkynnt var um níu líkamsárásir, þar af tvær alvarlegar, og þá var farið í fjögur útköll vegna heimilisofbeldis. Nokkuð var líka um þjófnaðarmál í verslunum, auk þess sem brotist var inn í þrjá söluturna og tvær bifreiðar. Átta umferðarslys voru enn fremur tilkynnt til lögreglu um helgina.