14 Nóvember 2019 11:34

Nú hefur lögreglan tekið í notkun nýja tækni og hér eftir verður hægt að nálgast upplýsingar um sektir í pósthólfi á island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi.

Þegar fólk fær sekt fær það tilkynningu í tölvupósti og getur síðan farið á vefsíðuna og séð þar sektarboðið.

 

Það er aldrei gleðiefni að fá sekt fyrir umferðarlagabrot, en þó skiptir máli að geta nálgast allar upplýsingar um málið með eins auðveldum hætti og unnt er.

Vonandi þurfa samt sem fæstir að nýta sér þessa auknu þjónustu.