16 Desember 2020 12:25

Samkvæmt veðurspá dagsins verður úrkomulítið á Seyðisfirði í dag en bætir svo í með kvöldinu og talsverðri rigningu spáð á morgun. Þeir íbúar sem hug hafa á að sækja nauðsynjar, kanna ástand og eftir atvikum gera ráðstafanir, eru hvattir til að gefa sig fram í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði. Þar verða frekari upplýsingar veittar og aðstoð við að fara inn á rýmingarsvæðið.

Með hliðsjón af veðurspá er gert er ráð fyrir að rýming verði áfram fram á morgundaginn að minnsta kosti. Staðan er þó metin reglulega. Næsta tilkynning lögreglu er fyrirhuguð um klukkan 17:00 í dag.