17 Febrúar 2021 16:07

Karlmaður á áttræðisaldri lést í umferðarslysi á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ í dag. Varð maðurinn fyrir bifreið er hann gekk yfir götuna. Tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 7.54.  Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins, en ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið helgig@lrh.is