22 Október 2020 17:02

Kl. 07:02 í morgun barst Neyðarlínu tilkynning um slys í malarnámu suðaustanvert í Lambafelli við Þrengslaveg.   Þar reyndist jarðýta sem verið var að nota við að losa efni og ýta fram af fjallsbrúninni hafa farið fram af brúninni og ofan í námuna. Stjórnandi vélarinnar, íslenskur karlmaður á sextugs aldri, fannst skammt frá vélinni og reyndist látinn þegar að var komið.

Tildrög slyssins, sem talið er hafa átt sér stað einhverntíman á tímabilinu eftir kl. 23:00 í gærkvöldi og til morguns, eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Gott væri að fá upplýsingar, frá vegfarendum um Þrengslaveg á þeim tíma geti þeir upplýst með einhverjum hætti um tímasetningar s.s. hvort þeir hafi séð til vinnu vélarinnar.  Slíkum upplýsingum má koma til okkar í síma 444 2000, í tölvupósti á sudurland@logreglan.is eða á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um rannsóknina að sinni.