20 Nóvember 2022 10:20

Maður á þrítugsaldri lést í umferðarslysi á níunda tímanum í gærkvöldi er rafhlaupahjól og hópferðabifreið lentu saman á horni Barónsstíg og Grettisgötu. Maðurinn sem lést var á rafhlaupahjólinu. Farþegum hópferðabifreiðarinnar var boðið upp á áfallahjálp hjá Rauða krossinum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög slyssins ásamt Rannsóknarnefnd samgönguslysa.