10 Apríl 2014 12:00

Vegna frétta í fjölmiðlum um innbrotstilraun sorphirðumanna í austurborginni í gær vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu koma því á framfæri að hvorki var um innbrot né innbrotstilraun að ræða. Þetta hefur rannsókn embættisins leitt í ljós og jafnframt að vinnubrögð sorphirðumanna í þessu tilviki voru með öllu eðlileg. Það var nýr starfsmaður sem fór með masterslykil að húsinu til að aðgæta hvort sorptunna kynni að vera innan við dyr að bílskúr, enda sorptunnur ekki alltaf sjáanlegar og oft geymdar á bak við læstar dyr. Af þeim sökum er masterslykla að sorpgeymslum að finna í ruslabílum. Fljótt kom á daginn að lykillinn gekk ekki að skránni og því ljóst að enga ruslatunnu var að finna þar innandyra. Að síðustu er rétt að geta þess að engar skemmdir urðu á hurðinni vegna þessa.