16 Maí 2008 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk  og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Það sem af er vikunni hafa á þriðja tug ökumanna verið stöðvaðir í umdæminu fyrir þessar sakir.

Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.