14 Október 2009 12:00

Karl á fimmtugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að hafa fallið 2-3 metra af svölum íbúðarhúss í Reykjavík í nótt. Maðurinn var í annarlegu ástandi en hann er ekki búsettur þar sem óhappið varð. Karl á sextugsaldri var sömuleiðis fluttur á slysadeild í nótt en sá hafði dottið í miðborginni og fengið skurð á ennið. Maðurinn var ölvaður.

Í gærkvöld rotaðist tæplega tvítugur piltur á íþróttaæfingu á höfuðborgarsvæðinu en hann var kominn til meðvitundar þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang. Og í gærmorgun slasaðist drengur á hendi í Reykjavík en hann klemmdist á heimili sínu og þurfti að sauma nokkur spor vegna þessa.