10 Júní 2003 12:00

Nú á átjánda tímanum í dag handtók lögreglan á Ísafirði karlmann á fertugsaldri.  Maðurinn var þá nýkominn með áætlunarflugi frá Reykjavík til Ísafjarðar.  Maðurinn hefur komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamisferlis og vöknuðu grunsemdir um að hann væri með fíkniefni í fórum sínum.  Við handtökuna fann lögreglan tæplega 76 grömm af kannabisefnum og tæp 4 grömm af amfetamíni hjá manninum.  Hann er ennþá í haldi lögreglunnar á Ísafirði, en rannsókn á fíkniefnamisferli mannsins stendur yfir.