2 Júní 2015 17:22

Tvær konur á fertugsaldri voru handteknar fyrir helgina í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tilraun til fjárkúgunar. Konurnar voru handteknar í Hafnarfirði um hádegisbil sl. föstudag. Þær eru grunaðar um að hafa sent bréf í pósti heim til forsætisráðherra og krafist þess að hann greiddi þeim tiltekna fjárupphæð. Enn fremur var tilgreint að fjármunina ætti að skilja eftir á ákveðnum stað sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði. Þar handtók lögregla konurnar.

Við yfirheyrslur játuðu konurnar að hafa sent umrætt bréf og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. Málið hefur verið rannsakað og unnið í góðri samvinnu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra. Málið telst að mestu upplýst en að lokinni rannsókn verður það sent til ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um næstu skref.