29 Janúar 2020 16:56

Framadagar verða haldnir í Háskólanum í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 30. janúar, en þar kynna fjölmörg fyrirtæki og stofnanir nám og atvinnutækifæri af ýmsu tagi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður á meðal þátttakenda, en hjá embættinu er jafnan hægt að sækja um fjölbreytt og spennandi störf fyrir bæði lögreglumenn og borgaralega starfsmenn. Fulltrúi frá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar verður líka á staðnum og veitir upplýsingar um starfsnám lögreglumanna, en um það sækja nemendur í lögreglufræði þegar þeir eru á fyrsta misseri. Námið í lögreglufræði fer fram í Háskólanum á Akureyri, en þar er kennt bæði í staðnámi og fjarnámi. Dagskrá Framadaga stendur frá kl. 10-14.