30 Júní 2022 15:49

Í kvöld og nótt er fyrirhugað að fræsa og malbika akrein á Reykjanesbraut, milli  Fífuhvammsvegar og Arnarnesvegar. Þrengt verður í eina akrein og veginum lokað að hluta. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19 í kvöld og til kl. 7 í fyrramálið.

Í kvöld og nótt er einnig er stefnt á að fræsa kafla á Breiðholtsbraut, milli Reykjanesbrautar og Seljaskóga. Veginum verður lokað og hjáleiðir settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 22 í kvöld og til kl. 4 í nótt.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.