13 Nóvember 2020 12:51
Nú berast lögreglunni tilkynningar um grunsamleg símtöl, bæði úr íslenskum og erlendum símanúmerum, þar sem reynt er að fá fólk til að gefa upp persónuupplýsingar og/eða fara í viðskipti með rafmyntir. Í a.m.k. einu tilfelli virðist vera um Íslending að ræða sem hringir. Íslensku símanúmerunum var úthlutað til fyrirtækja sem seldu þau úr landi og eru þau m.a. notuð fyrir netsíma sem erfitt er að rekja.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að fólk svari óumbeðnum símtölum um viðskipti með rafmyntir og símtölum þar sem reynt er að fá upp úr fólki persónuupplýsingar.