21 September 2022 17:35

Uppfært 22.09.2022 klukkan 18:04

Í aðgerðum lögreglu í gær voru aðilar handteknir í tengslum við rannsókn á ætluðum undirbúningi að hryðjuverkum. Þetta eru aðilar sem hafa verið undir rannsókn lögreglu vegna gruns um ætlaða framleiðslu og sölu á skotvopnum. Um er að ræða íslenska karlmenn á þrítugsaldri.

Tugir af skotvopnum, hálfsjálfvirkum þar á meðal hafa verið haldlögð í aðgerðum lögreglu ásamt þúsundum skotfæra.

Tveir af þeim einstaklingum sem voru handteknir í gær, þeir sem lögregla taldi vopnaða og hættulega, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald, annar í tvær vikur og hinn í eina. Ekki var talin ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds yfir hinum tveim sem handteknir voru í gær.

Rannsókn málsin er gífurlega viðamikil og lögreglan setur allar bjargir sem embættum lögreglu standa til boða í vinnslu málsins. Frekari upplýsingar um málið verða ekki veittar að svo stöddu.

Í kjölfar aðgerða lögreglu í gær er óhætt að segja að samfélagið okkar er öruggara.

Upprunaleg frétt 21.09.2022 klukkan 17:35
Í dag handtók lögreglan fjóra einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við yfirstandandi rannsókn. Rannsóknin er í höndum embættis ríkislögreglustjóra sem hefur það hlutverk að rannsaka öll þau brot sem snúa að landráði, broti gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess. Rannsóknin snýr meðal annars að skipulagðri glæpastarfsemi og viðamiklum vopnalagabrotum.


Vopnuð sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðum ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
. Tveir af þeim sem voru handteknir voru taldir vopnaðir og hættulegir. Það er mildi að engan sakaði í aðgerðum lögreglu en handtaka fór skjótt og vel fram. Vettvengur aðgerða hefur verið tryggður, hættuástandi afstýrt en viðbúnaður lögreglu var umfangsmikill og fóru aðgerðir fram víða á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í Holtasmára í Kópavogi og í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ. Handtakan og ofangreinar aðgerðir lögreglu í dag eru hluti af yfirstandandi rannsókn lögreglunnar.

Við þökkum almenningi fyrir skilning á því að lögregla geti ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu og fyrir að fylgjast vel með staðfestum upplýsingum um málið á www.logreglan.is en þær verða uppfærðar. Telji einhver sig hafa upplýsingar sem geta aðstoðað við rannsókn málsins má koma þeim til lögreglu með tölvupósti á info@rls.is, ef erindið er brýnt er númerið 112.

Nánari upplýsingar um málið,
Gunnar H. Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra.
gunnarhg@logreglan.is