20 Maí 2008 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, að Tjarnarstíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 136 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Einn ók á 70 km hraða eða meira en sá mældist á 77.      

Eftirlit lögreglunnar á Nesvegi er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Nesvegi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.