6 Febrúar 2009 12:00

Lögreglan á Akureyri handtók aðfararnótt s.l. þriðjudags tvo menn á tvítugs- og fertugsaldri rétt norðan Akureyrar grunaða um fíkniefnamisferli eftir að þeir höfðu verið stöðvaðir á bifreið á leið til bæjarins. Hald var lagt á 200 grömm af kannabisefni sem þeir höfðu meðferðis og talið er að efnið hafi verið ætlað til sölu á Akureyri. Mennirnir voru látnir lausir að loknum yfirheyrslum og er málið til rannsóknar. Auk þessa er annar mannanna grunaður um að hafa ekið bifreiðinni sem þeir voru á undir áhrifum fíkniefna.

Í miðjan dag í dag voru síðan tveir menn á þrítugsaldri handteknir á Akureyri og reyndust þeir hafa í fórum sínum 5 grömm af amfetamíni og talsvert magn af mismunandi tegundum lyfseðilsskyldra lyfja sem voru haldlögð. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.