5 Október 2011 12:00

Fjórir karlar og ein kona voru handtekin í lok síðustu viku í aðgerðum lögreglu tengdum fíkniefnaviðskiptum. Samtals var lagt hald á um hálft kg af ætluðu kókaíni. Einn fimmmenninganna er erlendur karlmaður á fimmtugsaldri og var hann úrskurðaður í farbann til 28. október. Hinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Rannsókn málsins heldur áfram.