13 Júlí 2021 12:56

Þann 8. júlí síðastliðinn kom skip til hafnar í Straumsvík með fjóra laumufarþega innanborðs. Talið er að þeir hafi komið um borð í skipið í Senegal um mánaðamótin maí/júní. Laumufarþegarnir uppfylla ekki skilyrði um komu til landsins þar sem þeir hafa engin gögn á sér sem geta staðfest uppruna þeirra. Mennirnir hafa dvalið í sóttvarnarhúsi og vinnur lögregla nú að því að staðfesta þjóðerni þeirra.

Lögregla mun ekki veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.