5 Nóvember 2015 10:16

Á föstudagskvöld ætlar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að vera með Twitter-maraþon, eða svokallað löggutíst. Löggutístið fer þannig fram að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun segja frá öllum verkefnum sem koma inn á hennar borð á samfélagsmiðlinum Twitter. Lögreglan hefur tvisvar sinnum áður verið með slík löggutíst og hafa þau gefist vel, en tilgangur þeirra er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.

Löggutístið hefst föstudaginn 6.nóvember kl. 18 og stendur yfir í hálfan sólarhring, eða til kl. 06 laugardagsmorguninn 7. nóvember.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan og nota einnig #-merkið #löggutíst

#löggutíst