24 Október 2017 15:19

Í morgun var leitað að erlendum ferðamanni á Suðurlandi eftir að aðstandendur mannsins hófu að grenslast fyrir um afdrif hans seint í gærkvöldi. Maðurinn átti bókað flug frá Íslandi þann 13. október en skilaði sér ekki á áfangastað.  Bifreið mannsins fannst í morgun á bílastæði þar sem gengið er að flugvélaflaki á Sólheimasandi og voru björgunarsveitir þá þegar kallaðar til leitar ásamt þyrlusveit LHG.

Nú eftir hádegið fundu björgunarsveitarmenn lík af karlmanni við Jökulsá á Sólheimasandi og er það talið vera af manninum.  Líkið verður flutt til Reykjavíkur þar sem Kennslanefnd Ríkislögreglustjóra  ásamt réttarmeinafræðingi og tæknideild lögreglu Höfuðborgarsvæðisins munu sjá um að bera kennsl á hinn látna ásamt því að krufning mun leiða í ljós dánarorsök mannsins.   Ummerki á vettvangi benda ekki til þess að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti.