20 Ágúst 2022 18:48

Nú þegar styttist í kvölddagskrána á Menningarnótt vill lögreglan brýna það sérstaklega fyrir foreldrum að skilja börn sín ekki eftir í miðbænum þegar dagskránni lýkur með flugeldasýningu í kvöld. Lögreglan mun taka hart á drykkju unglinga og vonast eftir góðri liðveislu foreldra í því. Börn yngri en 16 ára verða færð í athvarf fyrir ungmenni séu þau úti eftir lögboðinn útivistartíma samkvæmt barnaverndarlögum svo og þau ungmenni yngri en 18 ára, sem eru undir áhrifum áfengis og/eða annarra vímugjafa.

Góða skemmtun í kvöld – njótum saman sem fjölskylda og verum góðar fyrirmyndir. Hlökkum til að eiga áfram frábæra Menningarnótt saman.