28 Janúar 2009 12:00

S.l. mánudag handtók lögreglan á Akureyri tvo menn á þrítugsaldri grunaða um fíkniefnamisferli og hafði annar þeirra í fórum sínum 5 grömm af kókaíni. Lögreglan hafði hinn manninn grunaðan um að hafa stundað fíkniefnasölu á Akureyri og við húsleitir hjá honum fundust 500 e-töflur og um 55 grömm af kókaíni til viðbótar. Einnig haldlagði lögreglan peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Maðurinn viðurkenndi að eiga efnin og að hafa ætlað þau til sölu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst.

Auk þessa máls hafa komið fimm fíkniefnamál til kasta lögreglunnar á Akureyri í þessum mánuði þar sem hald hefur verið lagt á um 120 grömm að kannabisefnum, nokkrar e-töflur og peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Auk þessu tengdu hafa átta ökumenn verið stöðvaðir grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna það sem af er janúarmánuði.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005 (talhólf) og netfangið info@rls.is sem er samvinnuverkefni lögreglu og tollgæslu í baráttunni gegn fíkniefnavandanum.