29 Júní 2022 14:09

Þrátt fyrir að ökumenn hafi verið varaðir við vegna aksturs á nagladekkjum og sekt sem því fylgir, 20 þúsund fyrir hvert nagladekk, hafa um 100 ökumenn verið staðnir að slíku á höfuðborgarsvæðinu frá 18. maí. Um þriðjungur þeirra var stöðvaður í júní og því er greinilega ástæða til að minna aftur á þetta.