1 Mars 2011 12:00

Þótt mikilvægi bílbelta sé flestum ljóst eru enn margir sem hirða ekki um að nota þennan sjálfsagða öryggisbúnað. Gögn sýna að líkurnar á því að slasast í umferðinni eru margfalt meiri meðal þeirra sem nota ekki bílbelti. Þetta er rifjað upp hér því um helgina stöðvaði lögreglan tuttugu og fimm ökumenn sem notuðu ekki bílbelti. Hinir sömu eiga 10.000 kr. sekt yfir höfði sér, sem er reyndar aukaatriði. Aðalmálið er að ökumenn spenni alltaf beltin.