8 September 2010 12:00

Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík um miðjan dag í gær en bíll hans mældist á 128 km hraða á móts við Kirkjusand. Maðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Viðkomandi hefur áður gerst sekur um umferðarlagabrot.