1 September 2017 15:50

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns lítillar, rauðrar bifreiðar sem ók á bifhjól í Melatorgi (á mótum Hringbrautar og Suðurgötu) í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöld, fimmtudaginn 31. ágúst, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 19.39. Fyrrnefndur ökumaður ók rakleiðis af vettvangi og skeytti í engu um afdrif ökumanns bifhjólsins, en sá var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann til aðhlynningar.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann rauða bílsins um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið jonatan.gudnason@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.