19 Janúar 2007 12:00

Talsverð ölvun var á tveimur skóladansleikjum í Reykjavík í gærkvöld en á báðum stöðum voru framhaldsskólanemar að gera sér glaðan dag. Hringt var í foreldra og forráðamenn á þriðja tug ungmenna undir 18 ára aldri og þeim gert að sækja börn sín á fyrrnefnda dansleiki. Á öðrum skemmtistað í borginni voru höfð afskipti af fjórum 18 ára stúlkum sem höfðu keypt áfengi. Jafnframt var alvarlegum athugasemdum komið á framfæri við rekstraraðila.

Eftirlitslaust unglingapartí var leyst upp í vesturhluta borgarinnar en þar var nokkur fjöldi samankominn. Þá var ölvuðum unglingspilti ekið til síns heima í nótt en hann fannst rænulítill í snjóskafli í austurborginni.