29 Ágúst 2023 11:21

Ríkislögreglustjóri í saráði við lögreglustjórann á Suðurlandi lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Vatnshæð er farin að rísa í Skaftá og Eldvatni. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort hlaupið komi úr Skaftárkatli Vestari eða Eystri. Árið 2021 hljóp úr báðum kötlunum og má búast við svipuðum afleiðingum og þá.

Brennisteinsvetnismengunar getur gætt þar sem hlaupvatn kemur undan jökli og getur skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum auk þess sem árnar geta flætt yfir bakka og vegi sem liggja þeim nærri. Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnaárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.

Óvissustig Almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila

Hægt er að lesa fréttatilkynningar Veðurstofu Íslands á meðfylgjandi hlekk.
https://vedur.is/um-vi/frettir/hlaup-hafid-i-skafta-1