3 Október 2019 15:20

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna í íbúð fjölbýlishúss í Suðurhólum í Reykjavík í gærkvöld er lokið, en hún leiddi í ljós að eldurinn kviknaði út frá potti á eldavél. Mikill reykur var á vettvangi þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn, en húsráðendur voru ekki í íbúðinni þegar eldurinn kom upp. Vel gekk að rýma aðrar íbúðir í stigaganginum, en íbúðin þar sem eldurinn kom upp er mikið skemmd. Einn var fluttur á slysadeild.