14 September 2010 12:00

Af gefnu tilefni vill embætti ríkislögreglustjóra vara við enn einni útgáfu af tölvubréfum í anda svonefndra „Nígeríubréfa“. 

Um er að ræða tölvubréf þar sem viðtakendur eru upplýstir um að þeir hafi unnið háar fjárhæðir í svonefndu Euro Millions Lotto.  Sagt er að „netfang“ viðkomandi  hafi verið dregið út.

Viðtakendur eru beðnir um að senda margvíslegar upplýsingar áður en „vinningurinn“  verði greiddur. Slík bréf, rituð á bjagaðri íslensku, hafa verið send fólki hér á landi.     

Hér er um tilraun til svika að ræða þar sem markmiðið er að hafa fé af viðtakendum.

Ríkislögreglustjóri varar fólk eindregið við að svara slíkum tölvubréfum eða að smella á vefslóðir í þeim.