8 Maí 2018 15:06

Þann 1.maí hækkuðu sektir vegna umferðarlagabrota en margar þeirra höfðu verið óbreyttar í rúman áratug og þóttu mörgum þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sekt­ir við um­ferðarlaga­brot­um eru til þess falln­ar að veita öku­mönn­um aukið aðhald og stuðla þannig að auknu um­ferðarör­yggi. Nauðsyn­legt er að fjár­hæð sekta end­ur­spegli al­var­leika um­ferðarlaga­brota og þá hættu sem þau skapa. Flestar sektir hækka og margar þrefalt eða fjórfalt á við það sem þær voru.

Sérstaklega ber að geta þess að sekt fyrir að nota síma án handfrjáls búnaðar hækkaði í 40.000 krónur, en var áður 5.000 kr. Þessi brot hafa verið áberandi í kvörtunum almennings sem virðist þykja of margir ökumenn vera uppteknir í síma við akstur.

Lægsta sektar­fjár­hæð frá 1. maí er 20.000 krón­ur en var áður 5.000 krón­ur (eina und­an­tekn­ing­in er að sekt fyr­ir að hafa ekki öku­skír­teini meðferðis sem er 10.000 krón­ur). Hæstu sektirnar hækkuðu líka, þó að hlutfallslega sé hækkunin ekki eins mikil.

Hér á  vef Samgöngustofu er hægt að fá allar upplýsingar um sektir fyrir umferðarlagabrot.   Sektarreiknirinn var uppfærður þar sem notendur geta valið sér skilyrði og fengið út hver refsingin er fyrir hraðakstur og ölvunarakstur.

Í töflunni hér að neðan má sjá nokkrar af þeim sektum sem hækkuðu.